Total Pageviews

Sunday, May 28, 2017

2017-New Student

Kristín Edda Valsdóttir
Mjög efnileg ung kona að læra að mála með olíu.
A very promising young lady learning to paint in oils.

Í firsta tímanum teiknaði hún og grunnaði fyrir byrjunarverkefnunum.
Næsti tími var auðvitað "litahjólið" því hvar væri hún stödd án þess!
Kristínu Eddu gengur alveg sérstaklega vel.



Þriðjudag 26. maí

Ungur upprennandi listamaður!
Nú er viðfangsefnið "blóm" og þar kemur litahjólið hennar að góðum þörfum og eins og sjá má notum við aðeins heita liti (cadmium) sem hún er smá saman að átta sig á.
Það er frábært að sjá hversu vel hún grípur kennsluna mína.  

Miðvikudagur 14. maí





Friday, February 24, 2017

Myndlistarskóli Steinunnar - Andrea Dögg

Jæja, nú er ég komin í hvíld um sinn að kenna ungum nemendum og mun einbeita mér í að mála undir einkasýningu mína seinna á árinu.  Það hefur verið mjög svo gefandi að eiga tíma í að kenna unga fólkinu.  Nú er seinasti nemandinn minn farin að einbeita sér að öðrum verkefnum og óska ég henni blessunar í framtíðinni.  En ég ætla að birta seinustu myndunum sem hún gerði með hennar samþykki.  Ég er mjög ánægð með hennar verk og skilning hennar á uppbyggingu myndar og blöndunar lita.  Þakka þér Andrea Dögg fyrir þann tíma sem þú lærðir hér í Myndlistarskóla Steinunnar.

Skemmtileg hönnun af Hörgáreyri í svart hvítu.
Þessi er með fimm blöndum af gráu.

Sama viðfang þar sem hún notar fjóra liti og hún einbeitir sér í að gera vitan sýnilegann.

Hér er Andrea Dögg Arnsteinsdóttir með síðustu verkin sín.