Total Pageviews

Showing posts with label einkennsla í olíu. Show all posts
Showing posts with label einkennsla í olíu. Show all posts

Sunday, March 4, 2018

Einkatímar í olíu- Kristín Edda

Kristín Edda 
Kristín Edda er að gera góða hluti!  Hún hefur verið að mála fallega sumarmynd og er næstum búin með hana.  Kristín er mjög góð í a blanda litina sína og hefur gott auga fyrir því sem hún skapa.  Kristín er mjög hæfileikarík á mörgum sviðum, söngur og leikur eru hennar aðaláhugamál eins og er, það verður gaman að fylgjast með henni í framtíðinni.

Friday, February 24, 2017

Myndlistarskóli Steinunnar - Andrea Dögg

Jæja, nú er ég komin í hvíld um sinn að kenna ungum nemendum og mun einbeita mér í að mála undir einkasýningu mína seinna á árinu.  Það hefur verið mjög svo gefandi að eiga tíma í að kenna unga fólkinu.  Nú er seinasti nemandinn minn farin að einbeita sér að öðrum verkefnum og óska ég henni blessunar í framtíðinni.  En ég ætla að birta seinustu myndunum sem hún gerði með hennar samþykki.  Ég er mjög ánægð með hennar verk og skilning hennar á uppbyggingu myndar og blöndunar lita.  Þakka þér Andrea Dögg fyrir þann tíma sem þú lærðir hér í Myndlistarskóla Steinunnar.

Skemmtileg hönnun af Hörgáreyri í svart hvítu.
Þessi er með fimm blöndum af gráu.

Sama viðfang þar sem hún notar fjóra liti og hún einbeitir sér í að gera vitan sýnilegann.

Hér er Andrea Dögg Arnsteinsdóttir með síðustu verkin sín.

Saturday, March 12, 2016

Andrea Dögg


Andrea Dögg er búin að grunna og undirbúa tvær olíu myndir sem verða tilbúnar fyrir næsta tíma.